fimmtudagur, febrúar 26, 2004
sunnudagur, febrúar 22, 2004
Hef ég sagt ykkur frá því hvað hann Sverrir er sætur, klár og hreinlega frábær í alla staði.... Ekki nóg með að hann hafi leitt mig í gegnum rokið út í Viðey heldur fann hann líka diskinn minn :) Tek aftur allt sem ég sagði um útganginn heima hjá honum.. enda er víst Elli duglegur að kíkja við hjá honum og skúra.
SOS
Ég sit hérna við nýju fallegu tölvuna mína og er frekar súr! Í augnablikinu ætti ég nefnilega að vera búin að finna fullt af heimildum og prenta út á tiltölulega nýja fallega prentaranum mínum EN diskurinn með forritinu fyrir prentarann týndist í svínastíunni heima hjá Sverri (hljómar þetta nokkuð biturt ;) ) og því get ég ekki installerað prentarann.
Á einhver diskinn ? Þetta er Canon i-560 týpan af prentara...

laugardagur, febrúar 21, 2004
Förum í Viðey!
Hei ég veit förum út í Viðey. Ég ætla bara að klæða mig í galakjól, fara í 10 cm hæla og ákalla veðurguðina í von um að það verði ábyggilega nógu mikið rok og slæmt í sjóinn. Frábært hugmynd... eða ekki.
Ég vona bara að það hafi enginn náð mynd af mér með æðislegt augnaráð að stökkva úr ruggandi bátnum yfir á hála bryggjuna á (nota bene) háu hælunum sem ég er EKKI von að ganga í.

föstudagur, febrúar 20, 2004
Annars lenti ég í svoldið fyndnum aðstæðum í gær. Ég og Freyr vorum búin að vera að þvælast eitthvað allan daginn. Eins og gengur og gerist á fimmtudögum var helgin framundan rædd. Freyr er að fara í afmæli til vinar síns og fékk skilaboð um það úr vinahópnum að taka Erlu með (einstaklega vinsæl þessa daganna) því að þeir höfðu áhyggjur af kvennmannsskorti í partýinu og hann var að segja mér frá þessu glottandi.
Um kvöldið kíktum við á Kaffi Vín að hitta Erlu. Þar stóðum við hjá barborðinu að borga þegar að Freyr endurtekur þessa sögu um kvennmannsleysið í partýinu. Ég sá mér leik á boði, vanrækta eiginkonam ;) , sagðist hálf móðguð yfir þessu kvennmannsleysistali og mér hefði nú ekki einu sinni verið boðið.... Freyr nennti greinilega ekki að spila með og sagði "jú víst! þú ert boðin.. ég þarf nú varla að bjóða þér formlega með í hvert sinn... " Þá byrjaði maður við barborðið allt í einu að flissa, snéri sér að Frey og sagði "Vá! þú skilur konur greinilega ekki" og labbaði svo í burtu hlæjandi með bjórinn sinn. Algjör snilld!!!

Kokteill og Ball
Klukkan 5 er ég að fara í kokteil upp í Valhöll! Engar áhyggjur ég er ekki búin að skipta yfir í lögfræði þar sem að vísindaferðir eru of halló svo að nemar fara í kokteil í staðinn. Þetta er einungis upphitun fyrir árshátíð Politicu. Ég hlakkka ekkert smáveigis til. Ég hef horft girndaraugum á þessa mekku frelsis og einstaklingshyggju um áraraðir en hef aldrei orðið þess heiður aðnjótandi að stíga fæti þarna inn. Kanski ég nýti tækifærið í leiðinni og skrái mig loksins í flokkinn.
Ég svindla að vísu aðeins þar sem ég fékk ekki miða á matinn hjá Politicu en ég stefni engu að síður á að mæta galvösk á ballið að honum loknum, svo lengi sem ég farist ekki úr sjóveiki því árshátíðin er í Viðey (er nánast nóg fyrir mig að stíga á bryggju til að byrja að æla).

þriðjudagur, febrúar 17, 2004
Ég var að eignast nýtt barn, barnið er
svona útlítandi
SVO SÆT
Nú vantar mig bara Office pakka sem ekkert þarf að greiða fyrir. Drífa er byrjuð að ganga í málið en ef einhver býður upp á lausn tja... svona á næstu mínútum er það vel þegið.
mánudagur, febrúar 16, 2004
Úrslit kosninganna
Stal þessu fína grafi frá Jóa . Þetta hlýtur að teljast góð niðurstaða fyrir Háskólalistann þó svo að ástandið sé enn óbreytt og erfitt geti reynst að ná í gegn helstu stefnumálum framboðsins. Ég vona því að Svansson reynist sannspár um framtíðina.
Ég vil nýta tækifærið til að óska Vöku til hamingju með sigurinn og Röskvu til hamingju með að vera nær því að ná fjórða manningum en í fyrra. Rosalega er maður dipló í þessu :) Allir vinna!!!
fimmtudagur, febrúar 12, 2004
Góðar fréttir fyrir Háskólalistann!
Niðurstöður úr könnuninni um föngulegasta kvennframbjóðendann. Alls voru greidd 78 atkvæði (sennilega af 2 stelpum) og er niðurstaðan góð fyrir Háskólistann.
Í þetta skipti ætla ég bara að taka fram efstu 3 sætin því einhverjir voru víst sárir eftir slæma í fegurðarsamkeppni karlkyns frambjóðenda og það er ekki á stefnuskrá minni að veita fólki ör á sálinni fyrir lífstíð (nema ef til vill Erlu á góðum dögum). ;)
1. Drífa sæta H-listaskvís rétt marði keppnina með 37% atkvæða (30 atkvæði)
2. Erla "piparjúnka" eða piparmey eins og hún öskraði þegar hún sá þetta rétt missti af fyrsta sætinu því hún fékk 36% atkvæða (29 atkvæði)
3. Halli kom sterkur inn í þettta skipti og náði 11% atkvæða (9 atkvæði)

miðvikudagur, febrúar 11, 2004
Kosningar
Drífa er í forystu keppni um föngulegasta kvennmanninn í framboði í ár. Erla fylgir fast á hælana á henni og það kemur eflaust engum á óvart að Halli er í því þriðja. Kosningunni verður lokað í dag þannig að Erla og Drífa verða að flýta sér að kjósa sig sjálfar enn og aftur. Rosalega væri gott að hafa álíka kosningarétt og þær í alvöru kosningum.... rosalega væri Háskólalistinn þá í góðum málum.
Annars er ég með hnút í maganum... það er ansi erfitt að hafa lagt alla þessa vinnu á sig, varla sofið í fáranlega langann tíma og þurfa svo að bíða og vona ;)
X-H
Háskólalistinn fyrir hagsmuni stúdenta
Svo er kosningagleði eða andvaka á Stúdentakjallaranum annað kvöld (fimmtudag) kl 21 og langt fram eftir.

sunnudagur, febrúar 08, 2004
Úrslit könnunarinnar
Gunni sæti 11 atkvæði eða 14%
Árni "the rock" 7 atkvæði eða 9%
Elli með lokkinn 22atkvæði eða 28%
Heiðar lögfróði 15 atkvæði eða 19%
Bragi spekúlant 12 atkvæði eða 12%
Bogi (allavega fannst Obbu hann sætur) 5 atkvæði eða 6%
Jan Kutrzeba 2 atkvæði eða 3%
Marvin Lee Dupree (eða þessi með hárið eins og Drífa kallar hann) 3 atkvæði eða 4%
Einhver annar... en þá þarf að útskýra það í commentakerfinu! 4 atkvæði eða 5%
Sigurvegari kosningarinnar er því Elli þrátt fyrir mótmæli ýmissa H-lista stúlkna... sem hefðu viljað sjá annan dreng með krúnuna.

2 tímar eftir af könnuninni
Er að spá í að loka þessari frægustu könnun sögunnar (á síðunni minni) í kvöld. Þið sem viljið kjósa enn og aftur verðið því að drífa ykkur að því
Annars hef ég engar áhyggju af komandi kosningum. Elli oddviti hefur sýnt og sannað hæfileika sína í smölun...því þrátt fyrir miklar mótbárur hans er ég nokkuð viss um að hann hafi sent nokkur sms.
Hvað á annars næsta könnun að fjalla um? Á hún að vera um fallegasta kvennframbjóðandann eða jafnvel hvort að orðræðan sem allir karlmenn Háskólalistans hata eigi að hætta?

föstudagur, febrúar 06, 2004
VÁ... ég á bara ekki orð... ég vissi hreinlega ekki hversu útpælt veggspjald Háskólalistans var, sérstaklega athyglisvert þetta með GRÆNU sokkabuxurnar á svarthvíta veggspjaldinu okkar.... Ég heimta að Obba verði listrænn ráðunautur á öllum auglýsingum og veggspjöldum hér eftir!
"Í háskólabíó sá ég veggspjald með myndum af frambjóðendum Háskólalistans. Sem ætti af myndunum að dæma að heita Hryðjuverkalistinn. Einhver Talibanakeimur á spjaldinu, en þó með nettu kommaívafi. Stelpurnar þar klæddar í þessum "méreralvegsama" stíl, þar sem pælingin er samt að vera alltaf með statement í klæðaburði. Í grænum sokkabuxum, sem tákna fósturjörðina sem ríkisstjórnin er að nauðga. Þetta er nefnilega liðið sem fór í hungurverkfall út af Kárahnjúkum og mótmælti svo fallega með því að leggja vettling (vitaskuld úr lopaefni) þétt að Alþingisbyggingunni ekki fyrir svo löngu. Virkilega falleg stund. Svo verður náttúruelga að vera amk. eitt stykki "Frjáls Palestína" í barminum og háraliturinn ef vel á að vera rauður, en ef ekki þá svona tætingslegt hár af því að það gefst hreinlega enginn tími til að greiða á sér hárið þegar maður liggur smellfastur í pælingum allan liðlangan daginn. Annars líst mér ágætlega á þetta framboð, gaman að það séu þrjár fylkingar í stað tveggja. Það lífgjar óneitanlega aðeins upp á baráttuna. Set þó spurningamerki við það að fara fram með listaframboð, annað árið í röð, þar sem helsta kosningamálið er einstaklingskosningar." (tekið af http://obba.blogspot.com).
Langar samt að benda á þá leiðinlegu staðreynd um kosningakerfið að sama hversu mikill vilji er fyrir hendi þá er einfaldlega ekki hægt að bjóða fram einstaklinga.... bara lista.... jafnvel þó það sé annað árið í röð

Kiknar í hnjánum af ást?
þetta er nú einum of! Erla sá draumaprinsinn enn og aftur í dag og viðbrögðin voru heldur óvænt... 10 skrefum frá honum datt hún kylliflöt og hefur sennilega tognað í fætinum. Rosalegt hvernig ástin, stúdentastjórnmálin og svefnleysi fer með greyið. Þrátt fyrir sársaukann og snjóinn á bakinu, sá Erla greyið bara eftir einu... þ.e. að hafa ekki dottið nær honum þannig að hann hefði getað kysst á "báttið"

Og koma svo... könnunin er enn í gangi
Háskólalistinn er greinilega með lang sætustu karlmenninar í ár... Ég trúi því hreinlega ekki að Röskvu- og Vökuliðar standi ekki betur með sínum mönnum en þetta.... ég meina common... ekki er Heiðar SVONA sætur ...
... of lítill svefn og of mikill einkahúmor

Menntamálaráðherra ber hag Háskóla Íslands fyrir brjósti?
Þessi fundur með menntamálaráðherra í gær var ein mesta steypa sem ég hef upplifað. Hvernig dettur konunni í hug að mæta á fund með stúdentum og þylja upp tölfræði? Ég hef nú lært ýmislegt á háskólanámi mínu í félagsvísindadeild og eitt af því snýst um að allir geta rökstutt mál sitt með tölfræði... rökstuðningurinn er bara mis málefnalegur. Ég hefði nú gjarnan viljað hafa þessar tölur hennar í höndunum og sjá hvernig ég gæti leikið mér að þeim til að fá út það sem ég vil, enda var ein skörp Röskvustúlka (minnir mig) sem benti henni á að þessi glæsilega frammistaða íslenska ríkisins væri eilítið snúnari ef við reiknuðum út fjármagn per nemenda.
Ég var annars mjög ánægð með fundinn. Ég var ekki ánægð með menntamálaráðherra en ég var ánægð með hversu mikið af nemendum mættu og ég var sérstaklega ánægð með þær fyrirspurnir sem bornar voru fram. Þó að þetta hefði að vísu verið eilítið klisjukennt að allir nema tveir (eða svo) sem báru upp fyrirspurn væru í framboði sýnir það ef til vill hversu hugrakkt og duglegt fólk er í framboði fyrir allar fylkingarnar í ár. Nú er bara komin tími til að þessir dugnaðarforkar taki höndum saman... (ok stolið). Verst að fæstum fyrirspurnunum var svarað sem skyldi... það var til að mynda ótrúlegt hvað hún neitaði að svara spurningum um ábyrgðarmenn námslána, spurningum um LÍN sem félagslegan jöfnunarsjóð... en þannig eru víst "góðir" stjórnmálamenn... þeir svara í löngu máli án þess að svara.
Hetja fundarins í mínum huga var þó hann Sverrir fyrir spurningu sína um óarðbært nám og skólagjöld.. sérstaklega þegar hann bætti við með fyrirlitningu... "já finnst þér það"

fimmtudagur, febrúar 05, 2004
Ný könnun!
Það verða allir að kíkja á nýju könnunina sem ég setti inn vegna mikilla áhrifa kvenkyns samnemenda minna. Ég er nú barasta gift kona og er alveg sama um útlit frambjóðenda... ;)

Staðið vörð um Háskóla Íslands
Í dag tók ég þátt í skemmtilegum gjörningi á vegum Röskvu. Röskvuliðar hvöttu Háskólanema til að taka höndum saman og með þetta að markmiði var myndaður hringur í kringum Aðalbyggingu Háskólans. Við hjá Háskólalistanum komum reyndar á síðustu stundu og hjálpuðum til við að fullmynda hringinn. Það var þó ekki með vilja heldur stafaði af því að okkur leist ekkert á fámennið og hlupum í nærliggjandi byggingar til að hvetja fólk til þáttöku.
Hugmyndin að "mótmælunum" var mjög góð en ég hefði þó frekar viljað heyra hana borna upp í Stúdentaráði og framkvæmda af Stúdentaráði... en það er bara ég. Ég vil að allar aðgerðir af þessum toga séu gerðar af Stúdentaráði, tel slíkan hátt bjóða upp á meiri athygli og meiri áhrif.
Að loknum faðmlögum og nokkrum vel völdum stríðsópum var stormað niður í Náttúrufræðihús þar sem Menntamálaráðherra sat fyrir svörum... eða öllu heldur reyndi allt til að koma sér hjá því að svara. Fjalla betur um það seinna.
VIÐBÓT 06.02.04: Einhverjir hafa tekið þessum skrifum mínum um framtak Röskvu á þann veg að ég kunni ekki að meta framtakið nægilega vel. Ég vil því ítreka það að mér fannst hugmyndin - tökum höndum saman - frábær og í sannleika sagt eitt það besta sem stúdentaráðsliðar hafa gert til þess að sýna það í verki að við viljum ekki skólagjöld, að við munum ekki sitja hjá meðan að jafnrétti til náms sé afnumið. Það eina sem ég hef út á framkvæmdina að setja er að þetta var gert í nafni fylkingar en ekki Stúdentaráðs. Enda sýndi ég það í verki að ég hreifst af hugmyndinni og tók þátt og hvatti aðra til þess sama.

mánudagur, febrúar 02, 2004
Góð helgi
Ég held að það sé varla hægt að lýsa helginni betur en Elli gerir á nýja blogginu sínu.
Ég verð nú samt að kvarta yfir færni verkfræðinema við Háskólann í hitastillingum á heitapottum. Ég held að Halli hafi hreinlega verið eini maðurinn sem treysti sér í þetta ísbað... og fyrir það fær hann titilinn HETJA HELGARINNAR

sunnudagur, febrúar 01, 2004
Þrátt fyrir áhyggjur ákveðinna einstaklinga, náði Háskólalistinn að setja saman glæsilegan lista í ár.
Ýtið hér til að sjá listann í allri sinni dýrð