fimmtudagur, febrúar 26, 2004
sunnudagur, febrúar 22, 2004
Hef ég sagt ykkur frá því hvað hann Sverrir er sætur, klár og hreinlega frábær í alla staði.... Ekki nóg með að hann hafi leitt mig í gegnum rokið út í Viðey heldur fann hann líka diskinn minn :) Tek aftur allt sem ég sagði um útganginn heima hjá honum.. enda er víst Elli duglegur að kíkja við hjá honum og skúra.
SOS
Ég sit hérna við nýju fallegu tölvuna mína og er frekar súr! Í augnablikinu ætti ég nefnilega að vera búin að finna fullt af heimildum og prenta út á tiltölulega nýja fallega prentaranum mínum EN diskurinn með forritinu fyrir prentarann týndist í svínastíunni heima hjá Sverri (hljómar þetta nokkuð biturt ;) ) og því get ég ekki installerað prentarann.
Á einhver diskinn ? Þetta er Canon i-560 týpan af prentara...

laugardagur, febrúar 21, 2004
Förum í Viðey!
Hei ég veit förum út í Viðey. Ég ætla bara að klæða mig í galakjól, fara í 10 cm hæla og ákalla veðurguðina í von um að það verði ábyggilega nógu mikið rok og slæmt í sjóinn. Frábært hugmynd... eða ekki.
Ég vona bara að það hafi enginn náð mynd af mér með æðislegt augnaráð að stökkva úr ruggandi bátnum yfir á hála bryggjuna á (nota bene) háu hælunum sem ég er EKKI von að ganga í.

föstudagur, febrúar 20, 2004
Annars lenti ég í svoldið fyndnum aðstæðum í gær. Ég og Freyr vorum búin að vera að þvælast eitthvað allan daginn. Eins og gengur og gerist á fimmtudögum var helgin framundan rædd. Freyr er að fara í afmæli til vinar síns og fékk skilaboð um það úr vinahópnum að taka Erlu með (einstaklega vinsæl þessa daganna) því að þeir höfðu áhyggjur af kvennmannsskorti í partýinu og hann var að segja mér frá þessu glottandi.
Um kvöldið kíktum við á Kaffi Vín að hitta Erlu. Þar stóðum við hjá barborðinu að borga þegar að Freyr endurtekur þessa sögu um kvennmannsleysið í partýinu. Ég sá mér leik á boði, vanrækta eiginkonam ;) , sagðist hálf móðguð yfir þessu kvennmannsleysistali og mér hefði nú ekki einu sinni verið boðið.... Freyr nennti greinilega ekki að spila með og sagði "jú víst! þú ert boðin.. ég þarf nú varla að bjóða þér formlega með í hvert sinn... " Þá byrjaði maður við barborðið allt í einu að flissa, snéri sér að Frey og sagði "Vá! þú skilur konur greinilega ekki" og labbaði svo í burtu hlæjandi með bjórinn sinn. Algjör snilld!!!

Kokteill og Ball
Klukkan 5 er ég að fara í kokteil upp í Valhöll! Engar áhyggjur ég er ekki búin að skipta yfir í lögfræði þar sem að vísindaferðir eru of halló svo að nemar fara í kokteil í staðinn. Þetta er einungis upphitun fyrir árshátíð Politicu. Ég hlakkka ekkert smáveigis til. Ég hef horft girndaraugum á þessa mekku frelsis og einstaklingshyggju um áraraðir en hef aldrei orðið þess heiður aðnjótandi að stíga fæti þarna inn. Kanski ég nýti tækifærið í leiðinni og skrái mig loksins í flokkinn.
Ég svindla að vísu aðeins þar sem ég fékk ekki miða á matinn hjá Politicu en ég stefni engu að síður á að mæta galvösk á ballið að honum loknum, svo lengi sem ég farist ekki úr sjóveiki því árshátíðin er í Viðey (er nánast nóg fyrir mig að stíga á bryggju til að byrja að æla).

þriðjudagur, febrúar 17, 2004
Ég var að eignast nýtt barn, barnið er
svona útlítandi
SVO SÆT
Nú vantar mig bara Office pakka sem ekkert þarf að greiða fyrir. Drífa er byrjuð að ganga í málið en ef einhver býður upp á lausn tja... svona á næstu mínútum er það vel þegið.
mánudagur, febrúar 16, 2004
Úrslit kosninganna
Stal þessu fína grafi frá Jóa . Þetta hlýtur að teljast góð niðurstaða fyrir Háskólalistann þó svo að ástandið sé enn óbreytt og erfitt geti reynst að ná í gegn helstu stefnumálum framboðsins. Ég vona því að Svansson reynist sannspár um framtíðina.
Ég vil nýta tækifærið til að óska Vöku til hamingju með sigurinn og Röskvu til hamingju með að vera nær því að ná fjórða manningum en í fyrra. Rosalega er maður dipló í þessu :) Allir vinna!!!
fimmtudagur, febrúar 12, 2004
Góðar fréttir fyrir Háskólalistann!
Niðurstöður úr könnuninni um föngulegasta kvennframbjóðendann. Alls voru greidd 78 atkvæði (sennilega af 2 stelpum) og er niðurstaðan góð fyrir Háskólistann.
Í þetta skipti ætla ég bara að taka fram efstu 3 sætin því einhverjir voru víst sárir eftir slæma í fegurðarsamkeppni karlkyns frambjóðenda og það er ekki á stefnuskrá minni að veita fólki ör á sálinni fyrir lífstíð (nema ef til vill Erlu á góðum dögum). ;)
1. Drífa sæta H-listaskvís rétt marði keppnina með 37% atkvæða (30 atkvæði)
2. Erla "piparjúnka" eða piparmey eins og hún öskraði þegar hún sá þetta rétt missti af fyrsta sætinu því hún fékk 36% atkvæða (29 atkvæði)
3. Halli kom sterkur inn í þettta skipti og náði 11% atkvæða (9 atkvæði)